Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Kirkjur



Söfn og sýningar



Sögulegir staðir



Náttúruperlur



Handverk



Myndasafn



Blöndustöð



Varmahlíð



Vegalengdir:

Sauðárkrókur: 24 km
Hólar: 43 km
Blönduós: 51 km
Hofsós: 62 km
Skagaströnd: 75 km
Laugarbakki: 103 km
Hvammstangi: 109 km

Akureyri: 94 km
Húsavík: 185 km
Borgarnes: 221 km
Reykjavík: 294 km


Ferðaþjónusta
560 Varmahlíð:


Alþýðulist
Hótel Varmahlíð
JRJ Jeppaferðir
Kaupfélag Skagfirðinga
Litbolti
Upplýsingamiðstöð
Ævintýraferðir


Ferðaþjónusta
561 (dreifbýli):


AJ Saumaþjónusta
Bakkaflöt
Flugumýri
Lýtingsstaðir
Orlofshúsin við Reykjarhól
Rúnalist
Stóra Vatnssgarð

Varmahlíð er mjög vinsæll áningarstaður þeirra sem ferðast um þjóðveginn, þorpið stendur utan í svonefndum Reykjarhól. En hvorttveggja dregur nafn sitt af því að þar er gnægð af heitu vatni sem sprettur sjálfkrafa upp úr jörðinni. Heitavatnið er nýtt til upphitunar húsa í Varmahlíð og sveitinni í kring svo og í sundlauginni.

Á Reykjarhólnum hefur um árabil verið stunduð skógrækt af Skógrækt ríkisins og einnig Skógræktarfélagi Skagfirðinga. Skógræktin hefur nú verið gerð aðgengileg fyrir gesti og gangandi og er þar víða að finna skemmtileg rjóður þar sem hægt er að setjast niður og borða nestið sitt. Auk þess sem göngustígar liggja í gegnum skóginn og upp á hólinn en þar er útsýnisskífa og ágætt útsýni yfir sveitina.

Í Varmahlíð er ýmis þjónusta fyrir hendi sem ferðamenn geta nýtt sér, t.d. upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, banki og hraðbanki, verslun og póstafgreiðsla, sundlaug, tjaldstæði, sumarhús og hótel. Þar er einnig grunnskóli, íþróttahús og félagsheimili, ferðaþjónusta bænda býður einnig gistingu í nágreni Varmahlíðar.

Það er því ýmislegt hægt að gera, ef staldrað er við í Varmahlíð og ýmis önnur afþreying er einnig í boði á staðnum, svo sem hestaleiga, veiði og raftsiglingar.

www.skagafjordur.is





Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð