Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Sæluhús FÍ - Valgeirsstaðir




Valgeirsstaðir - Ferðfélag Íslands
Heimilisfang: Valgeirsstaðir Norðurfirði
Sími: 568 2533
Netfang: fi@fi.is
Heimasíða: www.fi.is

Sæluhús FÍ í Norðurfirði nefnist Valgeirsstaðir og er gamalt íbúðarhús í góðu standi. Það stendur við botn Norðurfjarðar, rétt ofan við fallega sandfjöru. Í húsinu er veiturafmagn og það er hitað upp með rafmagni. Húsið er tvær hæðir. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi sem rúma frá einum og upp í fjóra gesti. Á neðri hæð eru fjögur herbergi sem taka frá þremur upp í sex gesti. Samtals tekur húsið 20 manns. Þar er einnig borðstofa og velbúið eldhús. Í eldhúsinu er heitt og kalt vatn, rafmagnseldavél með ofni, örbylgjuofn og allur borðbúnaður. Í húsinu er sturta og tvö salerni. Í 10 mínútna göngufæri frá húsinu er verslun og sundlaug er á Krossnesi, ekki ýkja langt í burtu.

Til baka



Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir