Tjaldsvæðið Varmahlíð
Heimilisfang: Reykjarhóli, 560 Varmahlíð
Sími: 8617697
Netfang: sigskag@simnet.is
Nýtt tjaldsvæði var tekið í notkun í Varmahlíð sumarið 2008. Það er staðsett í skjóli skógarins í suðurhlíðum Reykjarhóls og er opið frá 1. júní til 1. september.
Aðstaða er mjög góð; heitt og kalt vatn, sturta, fimm wc og handlaugar bæði inni og úti. Aðgengi er fyrir fatlaða. Flatir eru hólfaðar niður með skjólbeltum og eru sér flatir fyrir tjöld, og sér flatir og stæði með rafmagni fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Útigrill er til afnota fyrir gesti. Stutt er í afþreyingu, s.s. sundlaug , leiktæki og fótboltavöll.
Til baka
| 
|