Tjaldsvæðið á Hólmavík
Heimilisfang: Höfðagötu 8, 510 Hólmavík
Sími: 451 3111
Netfang: info@holmavik.is
Heimasíða: www.strandabyggd.is
Tjaldsvæðið blasir við strax á vinstri hönd eftir að ekið er inn í kauptúnið.
Strandabyggð rekur tjaldsvæðið á Hólmavík og hefur Íþróttamiðstöðin á Hólmavík umsjón með rekstrinum. Tjaldsvæðið er vel búið og vinsælt, enda staðsett rétt við nýju sundlaugina á Hólmavík og á skjólsælum stað. Á tjaldvæðinu er öll aðstaða fyrir húsbíla, rafmagn og losun, þvottavél og þurrkari eru aðgengileg inni í Félagsheimilinu, eins og eldunaraðstaða og internettenging. Salerni í Félagsheimilinu eru opin allan sólarhringinn yfir sumarið.
Opnunartími:
20 maí til 1. september
Til baka
| 
|