Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Sturlungaslóð




Á Sturlungaslóð í Skagafirði
Heimilisfang: , 550 Sauðárkrókur
Sími: 867 4213
Netfang: sturlungaslod@sturlungaslod.is
Heimasíða: www.sturlungaslod.is

Á Sturlungaslóð í Skagafirði er hægt að sjá marga staði sem komu við sögu 13. aldar (Sturlungaaldar) á Íslandi. Fara má hring í firðinum og heimsækja forn höfuðból Ásbirninga sem voru höfðingjaætt þessa tíma í Skagafirði. Hér eru margir átakastaðir þar sem barist var af hörku upp á líf og dauða. Upplýsingaskilti segja frá einstökum stöðum en auk þess er hægt að fá kort yfir sögustaðina með upplýsingum um þá. Þá er hægt að skoða listaverk og heimsækja heitar laugar.

Félagið Á Sturlungaslóð er með vikulegar ferðir um sögustaðina yfir sumarið. Um er að ræða stuttar og langar göngu- og rútuferðir með leiðsögn. Einnig geta hópar pantað leiðsögn. Í ágúst er viðburðadagur helgaður Sturlungu. Þá eru í boði fjölbreyttir viðburðir frá morgni til kvölds fyrir alla fjölskylduna.

Til baka


Smellið til að stækka

Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir