Ferðavefur Norðurlands vestra

Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Strandir

photo: claus sterneck - www.clausinceland.com

Ferðaþjónusta
510 Hólmavík:


Broddanes
Café Riis
Ferðaþjónustan Kirkjuból
Galdrasýning á Ströndum
Handverksmaðurinn Hafþór
Hótel Laugarhóll
Sauðfjársetur á Ströndum
Steinhúsið Gistihús
Strandahestar
Sundlaugin Hólmavík
Tjaldsvæðið Hólmavík
Upplýsingamiðstöðin


Ferðaþjónusta
520, 524 (dreifbýli):


Finnbogastaðaskóli
Freydís - Sigling
Gistiheimilið Bergistanga
Gistiþjónusta Sunnu
Kört - Minjar og handverk
Hótel Djúpavík
Kaffi Norðurfjörður
Malarhorn, Malarkaffi og ..
Sundlaugin Drangsnesi
Valgeirsstaðir - FÍ
Sundlaugin Krossnesi
Tjaldsvæðið Drangsnesi


Vegalengdir
Hólmavík:


Hvammstangi: 154 km
Blönduós: 201 km
Skagaströnd: 224 km
Sauðárkrókur: 277 km
Varmahlið: 252 km
Hólar: 279 km
Hofsós: 286 km

Borgarnes: 199 km
Reykjavík: 273 km
Akureyri: 344 km
Húsavík: 436 km

Strandir draga nafn sitt af langri strandlengjunni sem liggur frá botni Hrútafjarðar norður eftir Vestfjarðakjálkanum austanverðum. Suðurhluti sýslunnar einkennist af aflíðandi fjallshlíðum og liggja fjórir heiðarvegir vestur yfir heiðar um Laxárdalsheiði, Steinadalsheiði, Tröllatunguheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Strandir eru fyrst og fremst þekktar sem sauðfjárræktarsvæði. Í fjörunni á Ströndum er mikið um rekavið sem voru verðmætustu hlunnindi svæðisins fyrr á öldum.

Hólmavík er stærsta kauptúnið á Ströndum og jafnframt verslunar- og þjónustumiðstöð sýslunnar. Þorpið stendur innan við miðjan Steingrímsfjörð sem er stærsti fjörðurinn sem gengur úr vestanverðum Húnaflóa.

Helstu atvinnugreinar á Hólmavík hafa löngum verið verslun og ýmis þjónusta, auk útgerðar. Ferðaþjónusta hefur verið vaxandi atvinnugrein síðustu ár og þar er upplýsingamiðstöð ferðamála. Galdrasýning á Ströndum er með höfuðstöðvar á Hólmavík og hefur verið einn helsti vaxtarbroddur í ferðaþjónustu og ímyndarsköpun Strandamanna í greininni. Þar eru einnig miðstöðvar Orkubús Vestfjarða og Vegagerðar ríkisins. Tvær bankastofnanir eru á Hólmavík, Sparisjóður Strandamanna og Arion banki. Stærsti vinnustaður á Hólmavík er Hólmadrangur hf, sem rekur fullkomna rækjuverksmiðju.

www.strandabyggd.is

Drangsnes er líklega minnsta fiskimannaþorp í heimi. Drangsnes er lítið þorp á Selströnd yst við norðanverðan Steingrímsfjörð. Á Steingrímsfirði, úti fyrir Drangsnesi, er eyjan Grímsey sem er talin stærsta lundbyggð í heimi á einni eyju. Boðið er upp á náttúruskoðunarferðir, reglulegar siglingar út í Grímsey með leiðsögumanni og sjóstangveiði með Sundhana ST-3. Á Drangsnesi eru heitir pottar í fjörunni þar sem er ókeypis aðgangur, sjá mynd hér til hliðar. Drangsnesingar hafa haldið Bryggjuhátíð árlega frá 1996 og dregur hún til sín fjölda fólks hvert sumar. Flestir Drangsnesingar taka þátt í undirbúningi hátíðarinnar í sjálfboðavinnu.

www.drangsnes.is

Djúpavík er lítið þorp í innanverðum Reykjarfirði og var ein af þremur verslunarstöðum í firðinum ásamt Kúvíkum og Gjögri. Djúpavík var áður fyrr stór síldarverstöð og stendur síldarvinnsluhúsið þar ennþá en öll vinnsla er hætt. Í dag er rekið hótel þar í gamla kvennabragganum.

Norðurfjörður er vík norðan Trékyllisvíkur og tilheyrir Árneshreppi. Landslag í Árneshreppi er víða stórbrotið og sérstakt. Ströndin er vogskorin, undirlendi lítið og há hamrafjöll gnæfa yfir byggð. Í og við Norðurfjörð er margt að sjá og ber þar helst að nefna siglingarnar með Freydísi, sundlaugina á Krossnesi, minja- og handverkshúsið Kört í Trékyllisvík og margt fleira. Akvegur fær öllum bílum liggur að Ingólfsfirði, norðan Trékyllisvíkur, en jeppavegur nær alla leið í Ófeigsfjörð.















Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir