Ferðavefur Norðurlands vestra


Ferðaþjónusta bænda



Fjallaskálar



Gistiheimili



Hótel



Íbúðir



Sumarhús



Svefnpokapláss



Tjaldsvæði



Snorraberg



Snorraberg
Heimilisfang: 545 Skagaströnd
Sími: 660 0288
Netfang: hendrik@internet.is
Heimasíða: www.skagastrond.is/snorraberg

Sumarhús Snorrabergs er staðsett rétt fyrir ofan Skagaströnd þar sem útsýni er úr húsinu yfir bæinn, út á Húnaflóa og í norður út á Skaga. Í Snorrabergi er hægt að slaka á í rólegu og heillandi umhverfi þar sem Spákonufellið drottnar fagurt og virðulegt yfir byggðinni. Húsið er nýlegt, glæsilegt heilsárshús, 60 m2 að stærð og búið góðum húsbúnaði. Gistirými er fyrir 5 manns í tveimur svefnherbergjum auk svefnsófa í stofu fyrir 2. Ágæt svefnaðstaða er því fyrir 7 gesti.

Snorraberg er staðsett við skemmtilegt tjaldsvæði sem jafnframt er útivistarsvæði fyrir börn. Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu fyrir hinn almenna ferðamann og einungis tekur nokkrar mínútur að fara fótgangandi í banka, matvöruverslun, sundlaug, bensínstöð, pósthús, apótek og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn svo fátt sé nefnt. Glæsilegur golfvöllur er í 5 mínútna akstursfjarlægð og stutt er í góðar gönguleiðir og stangarveiði. Á skíðasvæði Tindastóls er 35 mínútna akstur.

Til baka



Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð