Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Kirkjur



Söfn og sýningar



Sögulegir staðir



Náttúruperlur



Handverk



Myndasafn



Blöndustöð



Skagaströnd



Vegalengdir:

Blonduos: 23 km
Saudarkrokur: 51 km
Varmahlid: 75 km
Laugarbakki: 77 km
Hvammstangi: 81 km
Holar: 83 km
Hofsos: 89 km

Akureyri: 164 km
Borgarnes: 193 km
Húsavík: 255 km
Reykjavík: 267 km


Ferðaþjónusta
545 Skagaströnd:


Golfklúbbur Skagastrandar
Hafnir
Ísaumur
Kántrýbær
Nes Listamiðstöð
Samkaup Úrval
Skíðaskálinn Spákonufelli
Snorraberg
Sundlaug

Fyrstu heimildir fyrir byggð á Skagaströnd er á 10. Öld en þá bjó þar spákona að nafni Þórdís að Spákonufelli. Hennar getur víða í Íslendingasögunum og er henni borin misjöfn sagan enda var hún fjölkunnug. Þórdís fóstraði fyrsta kristinboða Íslands. Þorvald víðförla Koðránsson. Stuttu seinna bjó þar einnig Þóroddur sonur Snorra goða. Sagan hermir að Þórdís hafi á hverjum degi gengið upp á Spákonufell (646 mys.) og greiddi hún þar hár sitt með gullkambi. Sagt er að hún hafi fólgið gull sitt í fjallinu og mælt svo um að þess skyldi enginn njóta nema kona sú sem hvorki væri skírð né hefði nokkurt guðsorð lært.

Á einokunaröldinni var Skagaströnd aðalverslunarstaður Austur Húnvetninga, þangað til verslun hófst á Blönduósi. Staðurinn var lengi vel setinn af dönskum kaupmönnum og verslunarstjórum. Nöfn eins og Hölter, Duus, Bryde, Berndsen, Schram, Hoephner, Hillebrandt og Knudsen eru þekkt. Hafnargerð hófst þarna fyrir alvöru á fjórða áratugnum, frystihús var reist 1944 og síldarverksmiðja 1946. Uppi voru hugmyndir að gera bæinn að um 3000-5000 manna bæ. En síldin hvarf úr Húnaflóa og nú búa um 500 manns á Skagaströnd.

Skagstrendingar urðu fyrstir Íslendinga til að eignast frystitogara árið 1982. Vinnsla aflans fer nú að mestu leyti fram úti á sjó um borð í togurunum. Vinnslustöðvarnar standa nú ýmist tómar eða hafa öðlast nýtt hlutverk. Á höfninni hefur síldarverksmiðjan fengið nýtt hlutverk og er orðin að frystigeymslu. Elsta frystihúsið á Hólanesi er orðið að vinnustofu fyrir listamenn sem koma úr öllum heimshornum til að vinna að list sinni í Nes listamiðstöð. Í mjölskemmu síldarverksmiðunnar er fjölbreytt starfsemi m.a. fiskmarkaður og rannsóknarstofur sjávarlíftæknifyrirtækisins BioPol. Á Skagaströnd er góð matvöruverslun, heilsugæsla, þjónustuíbúðir fyrir aldraða, félagsheimili, íþróttamiðstöð, sundlaug og heitur pottur, kaffihús, hið landsfræga veitingahús Kántrýbær og kántrí útvarpsstöð (fm 96,7 og 100,76), 9 holu golfvöllur, gott tjaldsvæði ofl. Í águstmánuði eru haldnir kántrýdagar sem er líflega skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

www.skagastrond.is











Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð