Ferðavefur Norðurlands vestra

Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Siglufjörður



Vegalengdir:

Blönduós: 142 km
Skagaströnd: 0 km
Sauðárkrókur: 0 km
Varmahlið: 0 km
Laugarbakki: 0 km
Hvammstangi: 0 km
Hólar: 0 km
Hofsós: 0 km

Akureyri: 0 km
Borgarnes: 312 km
Húsavík: 0 km
Reykjavík: 386 km


Ferðaþjónusta:

Ferðaþjónusta Siglufjarðar
Gistihúsið Hvanneyri
Síldarminjasafnið
Tjaldstæði Siglufirði
Þjóðlagasetrið

Siglufjörður er nyrsti kaupstaðurinn á Íslandi og stendur við lítinn, samnefndan fjörð, undir háum fjöllum. Íbúarnir eru um 1300 og hefur undirstöðuatvinna þeirra í gegnum árin verið fiskveiðar og úrvinnsla sjávarfangs enda er Siglufjörður frá náttúrunnar hendi ein besta höfn landsins. Undanfarin áratug hefur þó orðið mikil breyting á atvinnuháttum á Siglufirði þar sem störfum tengdum sjávarútvegi hefur fækkað gríðarlega, eða um 300, með tilheyrandi fóksfækkun. Ýmis þjónustustörf og fjarvinnsla fyrir stofnanir er nú orðin mikilvægur hlekkur í atvinnulífi bæjarins og horfa bæjarbúar m.a. til fjölgunar starfa á þeim sviðum sem vaxtabrodd í atvinnumálum.

Þjónusta við ferðamenn hefur aukist á undanförnum árum og er kappkostað að taka vel á móti gestum bæjarins. Á því sviði er annar vaxtarbroddur sem litið er vonaraugum til því með tilkomu Héðinsfjarðarganga er búist við mikilli fjölgun ferðamanna enda hefur Siglufjörður upp á margt að bjóða sem vert er að skoða og njóta. Skal þar fyrst telja stórbrotin fjöllin og fegurð náttúrunnar sem virka sem áskorun á alla sem unna útivist. Frá fuglamergð fjörunnar eru stuttar gönguleiðir (eða um 3-4 km.) upp á 800-900 m háa fjallatinda! Vert er að skoða Síldaminjasafnið, sem án efa er eitt af áhugaverðustu söfnum landsins, Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og fleiri söfn og vinnustofur listamanna. Íþróttalíf staðarins er einnig fjölbreytt og aðstaða til íþróttiðkunar með ágætum, 9 holu golfvöllur, stór sundlaug og sparkvellir. Hér er nyrsti ræktaði skógur landsins sem gaman er að skoða og síðast en ekki síst er hér gott mannlíf og friðsældin og veðurblíðan sem svo oft ríkir hér í þessum nyrsta kaupstað landsins er mikil.

Fáir bæir á Íslandi eiga sér jafn viðburðarríka sögu og Siglufjörður. Gengi fiskveiða og sjávarútvegsfyrirtækja hefur risið og hnigið á víxl og staðurinn ýmist gleymdur eða víðfrægur. Í byrjun 20. aldar var hér lítið þorp, hálfnorskt, sem óx svo hratt að Siglufjörður öðlaðist kaupstaðarréttindi árið 1918 og varð um leið sjálfstætt lögsagnarumdæmi og um miðja öldina var staðurinn orðinn einn af stærstu kaupstöðum landsins. Á ýmsan hátt ber hann þess enn merki að hafa verið höfuðborg síldveiðanna í Norður-Atlantshafi um langt skeið. Á Síldarminjasafninu, eina safni sinnar tegundar í heiminum, kynnumst við hinu sórkostlega síldarævintýri Íslendinga.

Fyrstu stóru jarðgöngin á Íslandi, Strákagöng, voru opnuð í gegnum fjöllin við Siglufjörð 1967 og var þá vetrarlöng einangrun bæjarbúa rofin. Nú hyllir undir opnun Héðinsfjarðarganga sem mun verða mikil lyftistöng fyrir bæinn, en enn um sinn er Siglufjörður endastöð þjóðvegarins sem þangað liggur. Eini akvegurinn þaðan kvíslast í raun til allra staða í veröldinni, (að sama skapi mætti e.t.v. segja að allar leiðir liggi til Siglufjarðar! :-).

www.fjallabyggd.is














Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð

Góðir grannar: Strandir