Fagranes - Drangeyjarferðir
Heimilisfang: 551 Sauðárkrókur
Sími: 453 6503, 846 8150
Netfang: fagri@simnet.is
Drangey er eitt af helstu kennileitum Skagafjarðar og þar gefur að líta hrikalega náttúrufegurð og fjölskrúðugt fuglalíf. Þarna bjó útlaginn Grettir með bróður sínum Illuga og þrælnum Glaumi í þrjú ár, en var á endanum veginn í eynni. Drangey var einnig forðabúr eða matarkista Skagfirðinga um aldir, þangað sóttu menn bæði fugl og egg.
Yfir sumarið er hægt að komast í siglingar um Skagafjörð, t.d. í Drangey, Málmey og Þórðarhöfða, frá Sauðárkróki og Reykjum á Reykjaströnd, þar sem Grettislaug er. Drangey er aðeins kleif á einum stað, í Uppgönguvík. Í eynni er Drangeyjarskáli, byggður 1984.
Til baka
| 
|