Ósar
Heimilisfang: 531 Hvammstangi
Sími: 862 2778 og 451 2978
Netfang: osar@hostel.is
Heimasíða: www.hostel.is
Farfuglaheimilið Ósar er á Vatnsnesi, aðeins um 25 kílómetra frá hringveginum. Á undanförnum árum hefur heimilið verð tekið til gagngerrar endurbóta og hafa þær breytingar heppast sérlega vel. Nafn sitt taka Ósar af því hve sólsetrið er fagurt á þessum slóðum. Ströndin, rétt neðan við heimilið, er líka full af lífi og þar má sjá seli, æðarfugl og aðra fugla og þar rís kletturinn Hvítserkur í göngufæri við farfuglaheimilið. Ósnert náttúran, kyrrlátt umhverfið og fjölbreytt afþreying gera Ósa að óskastað ferðamannsins. Aðeins þarf að ganga í fimm mínútur frá farfuglaheimilinu til að komast í nána snertingu við náttúruna. Hér geta gestir séð fjölda fuglategunda og úti fyrir ströndinni synda selir, en hér eru ein fjölskipuðustu sellátur Íslands. Fyrir utan þetta er rétt að nefna að margar fallegar gönguleiðir eru út frá Ósum. Næstu farfuglaheimili: Sæberg 60 km. - Akureyri 250 km.
Til baka
| 
|