Neðra Vatnshorn
Heimilisfang: 531 Hvammstangi
Gsm: 451 2928
Netfang: vatnshorn@vatnshorn.is
Heimasíða: www.vatnshorn.is
Gisting á 1. hæð í íbúð í gömlu húsi sem hefur verið gert upp á síðustu árum. Uppbúin rúm eða svefnpokapláss í 2 tveggja manna herbergjum með handlaugum og einu þriggja manna herbergi sem hentar fyrir hjón með 2 börn. Hægt er að bæta við aukarúm fyrir barn. Sameiginlegt WC og sturta, setustofa með sjónvarpi, bókum, leikfögum og spil. Nýtt innréttað eldhús með öllum þægindum. Íbúðin er einnig leigð út fyrir allt að 8 manns um helgar eða í miðri viku. Panta þarf með góðum fyrirvara Stutt í alla þjónustu og sund - barna og fjölskylduvænt.
Á bænum eru kindur, hestar, hundur og heimilisköttur. Hægt er að upplifa sauðburðinn í mai.
Til baka
| 
|