Tjörn - Íslenska landnámshænan
Heimilisfang: Vatnsnes, 531 Hvammstangi
Sími: 451 2271, 861 3348
Netfang: juliusb@simnet.is
Heimasíða: www.islenskarhaenur.is
Að Tjörn á Vatnsnesi er stærsta bú með íslensku Landnámshænuna hér á landi.
Íslenska Landnámshænan er virkilega skemmtilegur fugl og hver einstaklingur með sinn karakter eins og það er kallað.
Verið velkomin að skoða Landnámshænuna í sínu rétta umhverfi, skoða aðstæður hjá henni og hvernig hún lifir.
Einnig að skoða eggin í vélunum sem eru í útungun,sjá unga og kíkja á kjúklinga á ýmsum aldri.
Ef fólk er á ferðinni á þeim tíma þá verður jafnvel hægt að sjá unga skríða úr eggjum.
Til baka
| 
|