Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Minja- og handverkshúsið Kört




Minja- og handverkshúsið Kört
Heimilisfang: Árnesi 2 , 523 Trékyllisvík
Sími: 451 4025
Netfang: kort@trekyllisvik.is
Heimasíða: www.trekyllisvik.is

Minja- og handverkshúsið Kört var opnað sumarið 1997. Í áratugi hefur Valgeir Benediktsson safnað allskyns munum og minjum úr héraðinu. Þessir gripir hafa borist honum frá fólki hvaðanæva að sem flestir tengjast strandamönnum og þeirra störfum í gegn um aldirnar. Mikið hefur verið um það að ættingjar og aðrir venslamenn strandamanna hafi ánafnað safninu hina og þessa muni, allt frá einstökum forngripum til merkra ljósmynda og í dag eru safngripirnir fleiri hundruð talsins.

Strandamenn voru um aldir þekktir fyrir smíðisgripi sína, einkum úr rekavið, sem seldir voru vítt og breytt um landið. Minja og handverkshúsið Kört hefur haldið þessu merki á lofti og stutt við handverks og listafólk í héraðinu með því að bjóða gripi þess til sölu á sanngjörnu verði, til dæmis muni úr rekavið, beini, silfri og textílverk ýmiskonar. Það er því vel þess virði að koma við í Kört, skoða fallegt safn og glæsilega handunna gripi heimafólks

Til baka



Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir