Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Kirkjur



Söfn og sýningar



Sögulegir staðir



Náttúruperlur



Handverk



Myndasafn



Blöndustöð



Kirkjur á Norðurlandi vestra



Kirkjur í Húnavatnssýslum Smelltu hér til að skoða kirkjur í Skagafirði

Þingeyrakirkja var byggð á árunum 1864-1877, og vígð 9. september árið 1877. Kirkjan er talin ein af merkustu kirkjum landsins, að gerð og sögu. Byggð í rómverskum stíl með tæplega 1.meters þykkum veggjum. Í loftinu eiga að vera 1000 gylltar störnur og sömuleiðis eiga gluggar kirkjunnar að vera 1000 smáar rúður. Hún tekur nokkuð yfir 100 manns í sæti.

Hvammstangakirkja, Hvammstanga Kirkjan á Hvammstanga er fyrsta kirkjan sem þar hefur verið byggð. Hún er steinsteypuhús, vigð 1957, tekur 160 manns í sæti og stendur ofarlegur í kauptúninu. Kirkjuklukkur eru tvær, og önnur þeirra úr Kirkjuhvammskirkju. Kirkjugarður sóknarinnar er enn í Kirkjuhvammi.

Blönduósskirkja er sóknarkirkja Blönduóss og nágrennis. Kirkjubyggingin var teiknuð og hönnuð af Dr. Magga Jónssyni. Hugmyndir að útliti kirkjunnar sótti Dr. Maggi í fjöllin og landslagið í umhverfi staðarins. Kirkjan var vígð 1.maí 1993. Í kirkjunni eru sæti fyrir 250 manns og í kjallara kirkjunnar er aðstaða fyrir margvíslegt safnaðarstarf. Í kirkjunni er góður hljómburður og ber hún söng vel, kirkjan er vandað og veglegt guðshús.

Hólaneskirkja, Skagaströnd. Hólaneskirkja á Skagaströnd var vígð 20. október árið 1991 og tekur hún um 200 manns í sæti. Hún er teiknuð af Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi Hall hjá Arkitektastofunni s/f. Kirkjan stendur miðsvæðis í innri hluta bæjarins þar sem heitir Hólanes en þar var fyrst reist kirkja árið 1928. Hólaneskirkja þykir afar gott sönghús og er mikið notuð fyrir tónleika af ýmsu tagi. Kirkjugarður er á Spákonufelli rétt ofan bæinn en þar var kirkjustaður frá því fyrir aldamótin 1300 og fram til þess að kirkju var valinn staður í sjálfum bænum.

Staðarkirkja. Staður í Hrútafirði var frá fornu fari og allt fram á þessa öld prestssetur. Kirkjan á Stað var helguð Maríu mey. Núverandi timburkirkja mun hafa verið byggð 1884; yfirsmiður við byggingu var Sigurður Sigurðsson, faðir Stefán skálds frá Hvítadal. Kirkjan, sem er með turni og sönglofti, var rækilega uppgerð um 1980.

Gamla kirkjan á Blönduósi. Smíði kirkjunnar á Blönduósi hófst árið 1894. Þá var komin vísir að þéttbýli á Blönduósi. Áður hafði sóknarkirkja Blönduóssbúa staðið á Hjaltabakka, þar höfðu kirkjur staðið öldum saman. Blönduósskirkja var vígð 13. janúar árið 1895. Margir vilja varðveita kirkjuna, hún er hluti af gamla bænum, hún á sinn þátt í sögu og lífi staðarins Blönduóss. Hún skipar líka sess í huga bæjarbúa og þeirra sem fluttir eru burt úr bænum. Það er þess vegna vilji fyrir því að halda henni við eins og kostur er.

Auðkúlukirkja. Á Auðkúlu var kirkja þegar á fyrstu tímum kristni í landinu og var hún helguð Jóhannesi skírara. Krikjan sem núna er á Auðkúlu, mun hafa verið byggð árið 1894. Hún er áttstrend að lögun með turni upp úr miðri byggingunni. Ein kirkja er að svipaðri gerð en það er Silfrastaðakirkja í Skagafirði. Auðkúlukirkju byggði Þorsteinn Sigurðsson kirkjusmiður á Sauðárkróki og mun hún taka um 70. manns í sæti. Björn Eysteinsson frá Grímstungu gaf kirkjunni predikunarstólin árið 1930. Nýlega var kirkjan lagfærð að utan og innan.

Breiðabólsstaðakirkja, Vesturhópi. Prestssetur var á Breiðabólsstað frá fornu fari. Á Breiðabólsstað bjó Hafliði Másson á 12. öld. Hjá honum voru íslensk landslög fyrst færð í letur 1117. Þá má geta þess að fyrsta prentsmiðjan á Íslandi var á Breiðabólstað. Kirkjan var Ólafskirkja og annexían Víðidalstunga. Síðasti prestur var Stanley Melax til 1960. Núverandi guðshús mun vera byggð árið 1894 og stendur hún enn í upphaflegri mynd.

Efra-Núpskirkja, Miðfirði. Efri-Núpur var sérstakt prestakall fram yfir siðaskipti, en varð þá til ársins 1907 annexía frá Staðarbakka. Skáldkonan Rósa Guðmundsdóttir, þekkt sem Skáld-Rósa, lést 1855 og er jarðsett í Efranúps-kirkjugarði. Kirkjan á Efra Núpi var helguð hinum heilaga Tómasi erkibiskupi. Núverandi guðshús á Efra-Núp er steinsteypuhús, byggt 1960.

Hofskirkja, Hof var prestsetur á Skagaströnd, u.þ.b. 9 km norðan Skagastrandar. Þar eru tóttir, sem kunna að vera af hofi, kallaðar Goðatóttir. Í katólskum sið voru kirkjur staðarins helgaðar Ólafi hinum helga, Noregskonungi. Útkirkja var að Spákonufelli. Prestakallið var lagt niður 1907 og sóknir hennar lagðar til Höskuldsstaða. Timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð árið 1876. Veggir hennar eru múrhúðaðir að utan og þakið járnklætt. Prédikunarstóllinn er ævagamall, trénegldur, með myndum af guðspjallamönnunum.

Höskuldsstaðakirkja. Kirkjan, sem nú stendur á Höskuldsstöðum, var vígð 31. marz 1963. Hún er úr steinsteypu og tekur 100 manns í sæti. Litað gler er í gluggum. Yfir sönglofti er herbergi. Trékross er efst á turninum. Skrúðhúsið er sunnan kórs. Kaleikur og patina eru frá 1804 og altaristaflan er eftir Þórarin B. Þorláksson. Klukkurnar tvær eru frá árunum 1733 og 1737.

Melstaðarkirkja, Miðfirði. Á Melstað var prestssetur frá fornu fari. Er þar fyrst prests getið á 13. öld. Frægastur presta mun verða talinn Arngrímur Jónsson lærði, fæddur 1568. Sjálfur sat hann sem önnur hönd frænda síns og biskups á Hólum, Guðbrand þorlákssonar, á Hólum. Hann dó á Melstað 1648. Á Melstað var Stefánskirkja. Núverandi kirkja, sem er steinsteypt, var vígð 8. júni 1947. Predikunarstóllinn er útskorinn af Ríkharði Jónssyni myndhöggvara.

Tjarnarkirkja, Vatnsnesi Frægastir presta Tjarnarkirkjunnar eru án vafa séra Sigurður Norland frá Hindisvík, svo og eftirmaður hans séra Róbert Jack sem var jafnframt síðasti prestur er sat á Tjörn. Núverandi kirkja er byggð 1930 - 40 og tekur 70-80 manns í sæti. Í kirkjugarði eru leiði Agnesar og Friðriks, sem dæmd voru til lífláts og tekin af lífi árið 1830.

Vesturhópshólarkirkja, Vesturhópi. Á Vesturhópshólum var prestsetur til 1851. Til 1959 var kirkjan bændakirkja, en þá afhenti kirkjubóndinn Hjalti Guðmundsson hana í hendur safnaðarins. Hún var vígð Jóhannesi skírara. Núverandi guðshús mun vera byggt 1879. Predikunarstóllinn er mjög gamall og merkur gripur frá 17. öld, sennilega með allra elstu predikunarstólum sem til eru á Íslandi.

Kirkjuhvammskirkja, Hvammstanga Kirkjuhvammskirkjan stendur spölkorn ofan við þorpið og er hún friðlýst og í umsjón Þjóðminjasafnsins. Hún var annexía frá Melstað og helguð Tómasi erkibiskupi. Átti hún marga muni, sem eru núna í Hvammstangakirkju. Kirkjuhvammskirkjan er sérlega fallega staðset og vel þess virði að skoða hana sem og umhverfi hennar.

Staðarbakkakirkja, Miðfirði. 1907 var prestkallið á Staðarbakka lagt niður og sóknin lögð undir Melstað. Af prestum, sem sátu Staðarbakka, má nefna séra Þorlák Arngrímsson, sem var sonur Arngríms lærða. Kirkjan er gömul timburkirkja með turni. Tekur hún 120 kirkjugesti og var byggð 1890. Altaristaflan er talin gott listaverk, eftir Eyjólf Eyfells málara.



Bestu þakkir fá Bragi J. Ingibergsson, Þorsteinn H. Ingibergsson fyrir ljósmyndir.


Til baka



Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð