Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Ferðaþjónustan Kirkjuból




Ferðaþjónustan Kirkjuból
Heimilisfang: Kirkjubóli, 510 Hólmavík
Sími: 451 3474
Netfang: kirkjubol@strandir.is
Heimasíða: strandir.is/kirkjubol/

Kirkjuból er skemmtilegur áningarstaður miðsvæðis á Ströndum. Staðurinn er kjörinn fyrir fjölskyldufólk og alla aðra sem vilja njóta þess besta sem Strandasýsla og nærsveitir hafa upp á að bjóða. Kirkjuból stendur við veginn norður Strandir (nr. 68) og er 12 km sunnan við þorpið Hólmavík. Strandir eru vinsæll áfangastaður á sumrin og kjörinn fyrir náttúru- og fuglaskoðun, gönguferðir og útivist. Það er líka gaman að heimsækja Strandir yfir vetrartímann og um vor og haust. Þá er kjörið fyrir fjölskylduna, vinahópa eða saumaklúbba, að bregða sér í helgarferð á Strandir og lenda í ýmiskonar ævintýrum.

Til baka



Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir