Ferðaþjónustan Hveravöllum
Heimilisfang: 541 Blönduós
Sími: 452 4200, 894 1293 | Fax:
Netfang: hveravellir@hveravellir.is
Heimasíða: www.hveravellir.is
Boðið er upp á tvo gistiskála á Hveravöllum. Sá eldri er frá árinu 1938 og er á tveimur hæðum.
Á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi, eldhús og forstofa, en á efri hæðinni er svefnloft.
Húsið rúmar allt að 35 manns í rúmum.
Yngra húsið var reist árið 1980. Í því er svefnsalur með 20 tvíbreiðum kojum, geymslu, eldhúsi, forstofu og herbergi fyrir skálaverði.
Húsin eru bæði hituð upp með hveravatni, en heitt rennandi vatn er nýkomið í bæði húsin. Gaseldavélar eru í báðum húsunum og þar er einnig að finna helstu eldhúsáhöld.
Eftir langan dag á hálendinu er notalegt að stinga sér í náttúrulega heita laug sem staðsett er við annan skálann á svæðinu og láta þreytuna líða úr sér.
Til baka
| 
|