Ferðavefur Norðurlands vestra

Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Húnaþing vestra



Ferðaþjónusta
530 Hvammstanga:


Bardúsa
Gistiheimili Hönnu Siggu
Hlaðan kaffihús
Kaupfélag vestur Húnvetninga
Kidka
Selasetur Íslands
Selasigling
Sundlaug
Söluskálinn Harpa
Tjaldsvæðið Hvammstanga
Upplýsingamiðstöð

Ferðaþjónusta
531 (dreifbýli):


Brekkulækur
Dæli
Farfuglaheimilið Sæberg
Gauksmýri
Grettistak Laugarbakka
Handverskhúsið Langafit
Hótel Edda Laugarbakka
Illugastaðir
Íslenska landnámshænan
Leirhús Grétu
N1 Staðarskáli
Neðra Vatnshorn
Spes sveitamarkaður
Víðigerði


Ferðaþjónusta
500 Borðeyri (Stað):


Gistihús Staðarskála
Ferðaþjónusta Tangahúsi


Vegalengdir:

Laugarbakki: 9 km
Blönduós: 58 km
Skagaströnd: 81 km
Sauðárkrókur: 105 km
Varmahlíð: 109 km
Hólar: 136 km
Hofsós: 143 km

Borgarnes: 124 km
Reykjavík: 197 km
Akureyri: 203 km
Húsavík: 294 km

Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni Húnaþings vestra, þjónustumiðstöð nágrannasveitanna, skólastaður og miðstöð fyrir sveitastjórn. Verslunarsaga staðarins nær yfir rúm 100 ár og er Verslunarminjasafnið við höfnina gott dæmi um hvernig verslað var í krambúðum hér áðurfyrr. Góð höfn er á Hvammstanga, en rækjur eru aðalsjávarútvegsgreinin, auk smábátaveiða.

Stærsta prjóna- og saumastofa landsins er á Hvammstanga sem og fjölmörg sérhæfð smærri fyrirtæki. Handverkshúsið Bardúsa býður upp á mjög metnaðarfullan og jafnframt fallegan varning. Menningarlífið á staðnum er mjög fjölbreytt. Þar starfa kórar, leikfélag, íþrottafélagið Kormákur, sundfélagið Húnar, félagsmiðstöð unga fólksins - svo að fátt eitt sé nefnt.

Síðast en ekki síst er Hvammstangi tilvalinn áfangastaður ferðamanna, mjög góð sundlaug, einstakt tjaldsvæði í skjólgóðum hvammi með góðu þjónustuhúsi og fullkomri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna, gott gistihús, verslun, veitingarstaður, bankaþjónusta, heilsugæsla, eldsneytissala, bílaverkstæðiog önnur nauðsynleg þjónusta er á staðnum. Frá Hvammstanga er stutt að keyra út á Vatnsnes sem hefur að geyma fjölmarga sögustaði, fallegt landslag, frábært útsýni til Strandafjalla og síðast en ekki síst selalátur í þægilegu göngufæri.

Laugarbakki stendur skammt ofan við Miðfjarðará, þar sem áður hét Langafit og hestaat var stundað til forna eins og segir frá í sögunni um Gretti sterka Ásmundarson. Við Laugarbakka er jarðhiti sem er nýttur ekki aðeins fyrir þennan vingjarnlega stað heldur einnig þéttbýlið á Hvammstanga.

Gróðurhús með lífrænni ræktun, grunnskóladeild, íþróttahús og heitir pottar eru á Laugarbakka. Þar er rekin verslun, eldsneytissala, auk reksturs Eddu-hótels á sumrin. Svefnpokagisting tengd fallegu tjaldsvæði býður upp á marga möguleika, t.d. fyrir ættarmót í samstarfi við Félagsheimilið Ásbyrgi. Tiltölulega greiðfær vegur liggur uppúr Miðfirði allt fram að Arnarvatni og eru veiðileyfi í ár og vötn á Arnarvatnsheiði seld á Laugarbakka, sem er einskonar hlið að hálendinu.

Grettisból er nýtt nafn á gömlu húsi á Laugarbakka, sem var áður nýtt bæði sem verkstæði og sæðingarstöð. Húsið blasir við frá þjóðveginum þegar keyrt er framhjá. Í framtíðinni á Grettisból að verða menningarmiðstöð héraðsins og mun á svæðinu rísa upplýsingamiðstöð, sýning og útivistarsvæði tileinkað kappanum Gretti Ásmundarsyni og hans sögu.

Borðeyri stendur við Hrútafjörð og er eitt fámennasta þorp landsins með 25 íbúa 1. desember 2007. Fyrr á öldum var Borðeyri í tölu meiriháttar siglinga- og kauphafna. Nafn eyrarinnar er dregið af því að þegar Ingimundur gamli fór í landaleit, sumarið eftir að hann kom til Íslands, fann hann þar nýrekið viðarborð og nefndi eyrina Borðeyri eftir því.

www.hunathing.is














Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir