Vegalengdir:
Hofsós: 25 km
Sauðárkrókur: 31 km
Varmahlíð: 43 km
Blönduós: 78 km
Skagaströnd: 83 km
Laugarbakki: 133 km
Hvammstangi: 136 km
Akureyri: 122 km
Húsavík: 214 km
Borgarnes: 247 km
Reykjavík: 321 km
Ferðaþjónusta:
Ferðaþjónustan á Hólum
Sundlaug
Sögusetur íslenska hestsins
Undir byrðunni
|
Annað tveggja biskupssetra á Íslandi, og einn helsti sögustaður landsins. Biskupsstóll var settur þar árið 1106 og fyrsti biskupinn var Jón Ögmundsson. Um 7 alda skeið sátu biskupar á Hólum, auk þess sem lengstum var rekinn þar skóli. Á þessum tíma voru Hólar hinn raunverulegi höfuðstaður Norðurlands. Biskupstóllinn var lagður niður 1801 og endurvakinn 1985, þar situr Vígslubiskup. Þekktastir Hólabiskupa eru án efa, Jón Arason sem var síðastur biskup í kaþólskum sið og Guðbrandur Þorláksson sá er prentaði Guðbrandsbiblíu. Jón Arason flutti til landsins fyrsta prentverkið.
Núverandi kirkja á Hólum er fimmta dómkirkjan í röðinni reist 1763 úr rauðum sandsteini úr Hólabyrðu, sem er fjall fyrir ofan staðinn. Hún er elsta steinkirkja landsins og hefur nú verið færð nokkuð til síns fyrra forms. Kirkjan og munir hennar eru mjög merkilegir, en á staðnum er hægt að fá leiðsögn um kirkjuna alla daga 9-18.
Skóla hald á Hólum var endurvakið 1882, er Bændaskóli var stofnaður, sem viðleitni til að sporna við vesturferðum Íslendinga. Þar er nú kennd hestamennska og ferðamálafræði á háskólastigi auk fiskeldis. Ferðaþjónusta er rekin á Hólum frá maí - ágústloka og ýmis afþreying í boði á staðnum og nágreni. Meðal annars hefur verið útbúinn ritlingur fyrir ferðamenn sem leiðir lesandann á milli áhugaverðra staða á Hólum. (söguslóð) Sími 455 6333, 455 6300
www.skagafjordur.is
|



|