Ferðaþjónusta 565 Hofsós:
Ferðaþjónustan Hofsósi
Kaupfélag Skagfirðinga
Lónkot - Veitingastaður
Sundlaugin Hofsósi
Vesturfarasetrið
Vegalengdir:
Hólar: 25 km
Sauðárkrókur: 38 km
Varmahlíð: 62 km
Blönduós: 85 km
Skagaströnd: 89 km
Hvammstangi: 143 km
Laugarbakki: 129 km
Akureyri: 132 km
Húsavík: 223 km
Borgarnes: 252 km
Reykjavík: 326 km
|
Hofsós er einn elsti verslunarstaður landsins. Á Plássinu (sem svo er kallað) við höfnina er að finna fjölda eldri húsa, sem hafa verið gerð upp á undanförnum árum og setja skemmtilegan svip á þorpið. Þar stendur Pakkhúsið, gamalt bjálkahús frá einokunartímanum, og er það eitt elsta timburhús landsins, reist 1777.
Húsið er friðlýst og í eigu Þjóðminjasafns Íslands og hefur það verið endurgert og er nú sem næst sinni upprunalegu mynd. Gamla kaupfélags- byggingin hefur fengið nýtt hlutverk, en hún hýsir nú svokallað Vesturfarasafn, sem tileinkað er vesturförum og vesturferðum sem voru í hámarki um síðustu aldamót, þar er sýningin
"Annað land. Annað líf. Vesturheims- ferðir 1870-1914", frá Byggðasafni Skagfirði. Í Staðarbjargavík, rétt neðan við Hofsós eru sérkennilegar stuðlabergsmyndanir, en stuðlaberg er einnig að finna í Þórðarhöfðanum. Á Hofsósi búa um 200 manns.
www.skagafjordur.is
|

|