Hnjúkahlíð
Heimilisfang: 540 Blönduós
Sími: 452 4416, 891 8168 / 861 9816
Netfang: hnjukahlid@hnjukahlid.is
Heimasíða: www.hnjukahlid.is
Hnjúkahlíð er lögbýli og í dag er þar stunduð hrossarækt. Á jörðinni er nýlegt sumarhús (heilsárshús 50 fm) til leigu allan ársins hring. Tvö svefnherbergi, opið rými með eldhúskrók, stofu og borðstofu, baðherbergi með sturtu. Heitur pottur á verönd. Aðgengi er að interneti, sjónvarpi, kolagrilli og uppþvottavél. Húsið er búið leirtaui, öllum búsáhöldum og helstu tækjum.
Aðeins um 2ja mínútna akstur er á Blönduós þar sem er að finna alla grunnþjónustu. Í næsta nágrenni er að finna fjölbreytta afþreyingu, s.s. sundlaug, golfvöll, kunnar silunga- og laxveiðiár, og söfn. Frábærar gönguleiðir allt í kring og örstutt uppá hálendi um Kjalveg.
Til baka
| 
|