Ferðavefur Norðurlands vestra


Flúðasiglingar



Golf



Gönguleiðir



Jeppaferðir



Hestamennska



Litbolti



Réttir



Selaskoðun



Skíði



Sigling



Sundstaðir



Sportveiði



Nánar um gönguleiðir í Austur Húnavatnssýslu



Víða eru góðar gönguleiðir í Austur-Húnvatnssýslu. Nú þegar hafa 3 leiðir verið merktar og stendur til að bæta við þær árlega.

Vatnsdalshólar
Eru sérkennileg hólaþyrping í Vatnsdal, sem myndast hafa við gríðarlegt skriðufall úr Vatnsdalsfjalli. Það er góð hugmynd að staldra við og skella sér í lengri eða styttri gönguferð um hólana.

Álkugil
Áin Álftarskálará rennur eftir all hrikalegu gljúfri sem nefnt er Álkugil. Gönguleiðin er merkt frá veginum (722) í Vatnsdal og liggur meðfram gilinu austanmegin, að Einvígisfossi. Leiðin er um 2 klst. löng og telst vera meðalerfið.

Vatnsdalsárgil
Þessi leið hefur verið merkt og er gengið frá bænum Forsæludal. Hægt er að ganga meðfram gilinu en einnig er hægt að ganga eftir vegaslóða sem liggur að Friðmundarárgili. Til að komast yfir Friðmundaránna þarf að ganga með upp með henn smá spotta en þar er brú yfir ánna. Síðan er gilinu fylgt alveg þangað til komið er að fossinum Skínanda sem er efsti fossinn.

Blöndugil
Best er að ganga gilið frá suðri til norðurs. Farið er að gilinu við haug þann er Þramarhaugur er nefndur. Fyrst er komið að Landsenda og Landsendahvammi, en þar eru tölverðar leifar af Birkiskógi. Síðan er gengið með Gilinu til norðurs.

Laxárdalur
Dalurinn er nú kominn í eyði og er aðeins nýttur sem sumarbeit fyrir hesta og sauðfé. Gömul þjóðleið liggur úr dalnum og yfir í Skagafjörð.

Geitaskarð að Kirkjuskarði
Farið upp frá bænum að Geitaskarði, upp í samnefnt skarð, yfir á Laxárdal og þvert yfir hann að eyðibýlunum að austanverðu. Ekki sérlega erfið ganga, tímalengd aðra leið um 3 klst. Mesta hæð í Geitaskarði um 370 m.y.s.

Laxárdalur-Mjóidalur-Gálgagil
úr Laxárdal upp Kirkjuskarðið og yfir í Mjóadal. Þeir sem hafa áhuga á því að komast á hæstu tinda sýslunnar geta gengið úr skarðinu og upp á Laxárdalsfjöllin. Úr Mjóadal er gengið niður í Gálgagil sem er fallegt þröngt gil og segir sagan að þar hafi glæpamenn verið hengdir. Síðan er gengið tilbaka og komið niður við bæinn Balaskarð.

Spákonufell
Staðsett ofan við þéttbýlið á Skagaströnd, um 22 km norðan við hringveginn við Blönduós. Spákonufell (639 m) er einstaklega fallegt fjall og vinsælt til útivistar. Það er bæjarfjall Skagstrendinga og setur mikinn svip á umhverfið. Nokkrar gönguleiðir eru á fjallið. Algengust er svokölluð norðurleið og er þá lagt upp örskammt frá golfskála Golfklúbbs Skagastrandar. Þar er skilti með korti af gönguleiðum á Spákonufell. Gangan upp er víðast mjög þægileg og aflíðandi en brattinn er mestur efst.

Suðurleiðin er einnig góð en hún er brattari. Upphaf þeirrar göngu er við Skíðaskálann í mynni Hrafndals. Þar er einnig skilti með gönguleiðum á Spákonufell. Efsti hluti fjallsins, sjálfur Borgarhausinn, er ákaflega tilkomumikill. Um sextíu metra hátt þverhnípt hamrabelti setur mikilúðlegan svip á fjallið og þar fyrir ofan er stór mosavaxin slétta, um átta hektarar að stærð, en eiginlegur tindur er ekki á fjallinu. Útsýnið er gríðarlega mikið. Uppi á Borgarhausnum norðan megin er varða og við hana má fá gott skjól. Í vörðunni er stór kistill og í honum er gestabók. Sjálfur er kistillinn forn að sjá og í honum er áheitasteinn. Sveitarfélagið Skagaströnd gaf vorið 2009 út bækling um Spákonufell. Hann er til á íslensku, ensku og þýsku. Í honum er lýst helstu gönguleiðum, birt ítarlegt göngukort og fjöldi mynda. Sjá nánar www.skagastrond.is/umhverfi.asp.

Spákonufellshöfði
Staðsettur vestan við þéttbýlið á Skagaströnd, um 22 km norðan við hringveginn við Blönduós. Spákonufellshöfði rís vestan við byggðina á Skagaströnd. Í daglegu tali er hann nefndur Höfðinn og um hann hafa verið lagðar léttar gönguleiðir. Þangað sækir fólk til að njóta útsýnis og útivistar í fallegri náttúru þar sem nálægðin við hafið, fjallahringurinn, fuglalífið og landið leika við skilningarvitin. Höfðinn er fólkvangur, náttúruperla, tilvalinn staður til að njóta útiveru. Gönguleiðir eru flestar stuttar og við þær hefur víða verið komið fyrir fræðsluskiltum um fugla og plöntur. Þó hann sé ekki hár er afar víðsýnt af honum. Til landsins blasa við fjöll og dalir og handan hins víða Húnaflóa sér til mikilfenglegra fjalla á Ströndum.

Vorið 2009 var endurútgefinn fallegur bæklingur um Spákonufellshöfða. Í honum er ýmis fróðleikur um Skagaströnd og Höfðann, gróðurfar hans, jarðfræði og fuglalíf. Birt er loftmynd af Höfðanum og inn á hana merktar gönguleiðir. Bæklingurinn er til á íslensku, ensku og þýsku. Sjá nánar www.skagastrond.is/umhverfi.asp.


Vert er að geta þess að gerð hafa verið gönguleiðakorta fyrir A-Hún, V-Hún og Skagafjörð, þar sem að gönguleiðum á svæðinu eru gerð góð skil. Hver sýsla hefur kort fyrir sig.

Fleiri gönguleiðir sé að finna á göngukortunum sjálfum.


Til baka



Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð

Góðir grannar: Strandir