Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Galdrasýning á Ströndum




Galdrasýning á Ströndum
Heimilisfang: Höfðagata 8 , 510 Hólmavík
Sími: 451 3525
Netfang: galdrasyning@holmavik.is
Heimasíða: www.galdrasyning.is

Strandagaldur er menningar- og fræðslustofnun. Tilgangur hennar er að standa að rannsóknum og draga saman vitneskju um galdraöldina á Íslandi, þjóðsagnir, hugmyndaheim og menningararf Strandasýslu sem tengist göldrum, á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Ennfremur að miðla þessari vitneskju með sýningahaldi, uppákomum, fyrirlestrum, útgáfuverkefnum og samstarfi við skóla, fræðimenn og aðra þá sem sinna sömu málum hér og erlendis.

Strandagaldur stendur fyrir Galdrasýningu á Ströndum, sem eru sýningar á Ströndum um galdra og þjóðtrú og verður á þremur stöðum í héraðinu. Á Hólmavík, Í Bjarnarfirði og Trékyllisvík. Einnig vinnur Strandagaldur í samstarfi við Náttúrustofu Vestfjarða að fornleifauppgreftri á minjum erlendra hvalveiðimanna frá 17. öld.

Til baka



Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir