Fjallakaffi Gallerý
Heimilisfang: Steinnýjarstöðum, Skagabyggð, 545 Skagaströnd
Sími: 4522945 og 6923929
Netfang: lindabj@simnet.is
Heimasíða: www.northwest.is
Fjallakaffi Gallerý er kaffihús með handverksívafi.
Við erum staðsett að Steinnýjarstöðum í Skagabyggð, um tíu km norðan við Skagaströnd.
Þar er hægt að setjast niður og gæða sér á gómsætum heimabökuðum kökum og brauði ásamt ilmandi kaffi og
rjúkandi súkkulaði.
Af veröndinni má njóta veitinga, útsýnis og sveitasælu við
árniðinn frá Suðuránni sem rennur framhjá í fallegu gili.
Ýmsar handunnar vörur verða til sölu á staðnum ásamt vörum
frá Ísaumi.
Opið á sumrin frá 14-17 alla daga vikunnar.
Til baka
| 
|