Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Myndasafn



Söfn og sýningar



Sögustaðir



Náttúruperlur



Kirkjur



Handverk



Blöndustöð



Blöndustöð




Blöndustöð í Austur Húnavatnssýslu
Heimilisfang: 541 Blönduós
Sími: 455 6700
Netfang: landsvirkjun@lv.is
Heimasíða: www.lv.is
Sjá nánar um Blöndudstöð | Heimsókn í Blöndustöð

Framkvæmdir við virkjunina hófust árið 1984, 1992 var virkjunin síðan kominn í fullan rekstur. Blanda var stífluð við Refjatjarnarbungu, um miðja vegu milli upptaka og árósa. Jafnframt var reist stífla við upptök Kolkukvíslar nokkru vestar, en hún rennur til Vatnsdalsár. Með þessum stíflum myndaðist miðlunarlón sem er um 57 km² að flata-rmáli og hefur um 400 Gl miðlunarrými.

Frá Kolkustíflu er vatni veitt um veituskurði og vötn, samtals um 25 km leið að inn-takslóni virkjunarinnar. Gróður þakti stóran hluta þess lands sem fór undir miðlunarlón og inntakslón Blöndustöðvar. Um það samið við heimamenn að virkjunaraðili bætti gróðurtapið með uppgræðslu örfoka lands á heiðunum beggja vegna Blöndu, Auðkúluheiði og Eyvindarstaðaheiði.

Landsvirkjun hefur því ræktað upp meira en 3000 hektara lands frá árinu 1981 og heldur þeim við með áburðargjöf. Eru þetta einhverjar umfangsmestu uppgræðsluaðgerðir sem ráðist hefur verið í á hálendi landsins.

Til baka







Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Varmahlíð Hólar Hofsós

Góðir grannar: Strandir