Ferðavefur Norðurlands vestra


Þéttbýlisstaðir



Kirkjur



Söfn og sýningar



Sögulegir staðir



Náttúruperlur



Handverk



Myndasafn



Blöndustöð



Blönduós



Vegalengdir:

Skagaströnd: 23 km
Sauðárkrókur: 47 km
Varmahlið: 51 km
Laugarbakki: 54 km
Hvammstangi: 58 km
Hólar: 78 km
Hofsós: 85 km

Akureyri: 145 km
Borgarnes: 170 km
Húsavík: 236 km
Reykjavík: 244 km


Ferðaþjónusta
540 Blönduósi:


Bæjarblómið
Golfklúbburinn Ós
Glaðheimar
Hafíssetrið
Heimilisiðnaðarsafnið
Hótel Blönduós
Hnjúkahlíð
Ljón norðursins
N1 Blönduós
Potturinn og Pannan
Samkaup Úrval
Sundlaug
Textílsetur Íslands
Tjaldsvæðið Blönduósi
Upplýsingamiðstöð
Við Árbakkann
Þorsteinshús

Ferðaþjónusta
541 (dreifbýli):


Áfangi
Blöndustöð
Geitaskarð
Hof
Húnaver
Hvammur II
Hveravellir
Hótel Húnavellir
Stóra Gilja

Blönduós er stærsti þéttbýlisstaðurinn við Húnaflóa. Atvinna er tengd landbúnaði, léttum iðnaði, verslun, þjónustu, útgerð og hver þekkir ekki Vilko vörurnar. Á Blönduósi er vel útbúið sjúkrahús, heilsugæsla, þjónustuíbúðir fyrir aldraða, félagsheimili, íþróttamiðstöð, gott tjaldsvæði, hótel, kaffihús, veitingastaðir, matvöruverlun og öll almenn þjónusta. Ný og glæsileg sundlaug er í byggingu og verður hún tilbúin árið 2010. Samgöngur eru góðar, hér er flugvöllur og er staðsetning Blönduós ákjósanleg fyrir ýmiskonar fyrirtækjarekstur.

Á Blönduósi er Heimilisiðnaðarsafnið, sem nýverið opnaði í glæsilegum nýjum húsakynnum en safnið er hið eina sinnar tegundar á landinu. Hafíssetrið er staðsett í Hillebrandtshúsi í elsta bæjarhluta Blönduóss. Textílsetur Íslands var sett á laggirnar 2005 og er starfsemin til húsa í gamla Kvennaskólahúsinu. Nú er unnið að uppsetningu á Laxasetri Íslands á Blönduósi. Nýju kirkjuna teiknaði Dr. Maggi Jónsson arkitekt, hún er mjög sérstæð í útliti en Dr. Maggi notaðist við fyrirmyndir úr náttúru héraðsins. Kirkjan er opin öllum á sumrin frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.

Í Blöndu sem rennur í gegnum bæinn, er eyja sem kölluð er Hrútey, eyjan er friðlýst og eru þar göngustígar. Rétt utan við bæinn, í Vatnahverfi, er 9 holu golfvöllur. Á Blönduósi er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn en þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um áhugaverða staði og afþreyingu á svæðinu. Brú var gerð á Blöndu árið 1897 röskan kílómetra frá árósunum. Sama ár og brúin var smíðuð var kirkja flutt frá Hjaltabakka á Blönduós. En fremur varð Blönduós aðsetur sýslumanns og héraðslæknis þetta sama ár.

Elsta verslun á Blönduósi hét Möllersverslun. Þessi verslun táknar upphaf kauptúns á Blönduósi. Höfðakaupstaður, er Danir kölluðu oftast Skagestrand, eftir héraðinu, hafði verið löggiltur verslunarstaður frá tíð einokunar- verslunarinnar. Næsta höfn vestar var í Reykjafirði á Ströndum. Það þótti langur vegur innan úr dölunum út í Höfðakaupstað og þingmenn Húnvetninga fóru fram á að fá nýja löggilta höfn við Húnaflóa.

www.blonduos.is














Blönduós Hofsós Hólar Hvammstangi Sauðárkrókur Skagaströnd Varmahlíð